Posted by Helgi Hrafn

Courses

Discover Scuba Diving

Íslenska: Komið og prófið köfun á Hjalteyri. Köfun fyrir byrjendur sem langar að prófa að kafa. Kafað er við gömlu bryggjuna og kranan á Hjalteyri. Gjaldið gengur upp í Open Water námskeið fyrir þá sem ætla síðan að læra köfun. Verð 10.000 þúsund.

PADI Open Water Diver Course

Íslenska: Alþjóðleg köfunarréttindi niður á 18 metra dýpi. Sjö kafanir í sjó og sundlaug. Byrjað er á grunnri köfun til að kynnast köfun og köfunarbúnaðinum. Síðan tekur við köfun í sundlaug þar sem gerðar eru köfunaræfingar. Í næstu tveimur köfunum kynnast kafararnir betur köfunarbúnaðinum og lífríki sjávar. Síðustu tvær kafanirnar eru skemmtikafanir í fylgd leiðbeinanda. Verð 70.000 þúsund.

PADI Advanced Open Water Diver Course

Íslenska: Alþjóðleg köfunarréttindi niður á 30 metra dýpi. Á þessu námskeiði eru fimm kafanir þar sem kafarinn fær reynslu í að kafa niður á 30 metra dýpi. Meðal köfunarstaða sem boðið er uppá á námskeiðinu eru kafanir á Arnarnesstrýturnar og skútuna á pollinum. Farið er í eina næturköfun. Verð 50.000 þúsund

PADI Rescue Diver Course

Íslenska: Þetta námskeið er ætlað köfurum sem hafa nú þegar þó nokkra köfunarreynslu ásamt Advanded Open Water réttindum.

PADI Divemaster Program

Íslenska: Boðið er upp á PADI Divemaster starfsnám sem tekur nokkra mánuði og á þeim tíma vinnur nemandinn náið með kennara sínum. Námið gerir þig færan um að hafa yfirumsjón með köfurum og aðstoða kennara við kennslu köfunarnema.

More information / Nánari upplýsingar
Elvar Már Sigurðsson,  662 4133
Erlendur Bogason, 862 2949